- Ferðbúinn ehf. (kt.630293-3329) rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirra þjónustu sem keypt er hér.
• Aðilar undir 18 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni. • Takmarkið hávaða þannig að þú ónáðir ekki aðra gesti. • Borgið hverja nótt fyrirfram annars eigið hættu á að missa stæðið. • Bílar sem ekki er verið að sofa í þurfa að vera lagðir upp á bílastæði. • Við bjóðum ekki upp á langtímastæði og er hámarks dvöl 7 dagar. • Varðeldar eru bannaðir. • Verðmæti eru á eigin ábyrgð. • Hundar eiga að vera í bandi. • Það má ekki reykja eða elda í aðstöðuhúsinu. • Vinsamlegast farið með ruslið upp í sorpgerðið sem er staðsett fyrir ofan aðstöðuhúsið. • Ekki keyra inn á svæði A (aðeins tjöld). • Þú samþykkir að vera vaktaður með öryggismyndavélum sem eru við innganginn á tjaldsvæðinu og að vera vaktaður með númerplötu skanna sem hleypir bílunum inn um hliðið. • Þú samþykkir að leyfa okkur að senda tölvupóst með kvittun og upplýsingum um svæðið.
• Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 24 tímum fyrir bókaða dagsetningu og fá greidda upphæð að frádregnu 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt. • Ef dvöl er stytt fæst 50% endurgreiðsla fyrir þær nætur sem ekki eru nýttar. Ef dvöl styttist eftir kl. 13:00, dregst ein nótt frá heildar endurgreiðslu. • Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu. • Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 13:00 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma. • Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 11:00. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför. • Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði er 6 einstaklingar 13 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar. • Óheimilt er að framselja bókað stæði. • Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK. • Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tókst
Við munum senda þér upplýsingar um bókunina þína á Hafnarfjörður.
Villa
Upp kom villa
Þessi vefsíða notast við vefkökur til þess að bæta notenda upplifun. SjáFriðhelgisstefna