Parka.is
Eldborg Campsite at Snorrastaðir Campground Photo
Eldborg Campsite at Snorrastaðir
Eldborg tjaldsvæðið á Snorrastöðum
Eldborg tjaldsvæðið – Kjörinn viðkomustaður á Vesturlandi – Opið allt árið
Tjaldsvæðið er staðsett á Snorrastöðum, rétt við þjóðveg 54, aðalleiðina milli Borgarness og Snæfellsness, aðeins 38 km frá Borgarnesi. Hér finnur þú friðsælan og fallegan stað til að gista.
Hólf tjaldsvæðis
Lýsing tjaldsvæðis
Eldborg Tjaldsvæði

Eldborg Tjaldsvæði er staðsett rétt við þjóðveg 54, við innganginn að Snæfellsnesi, umkringt hrauni og fallegri íslenskri náttúru. Frá tjaldsvæðinu er útsýni yfir Snæfellsjökul og gönguleiðin að hinum tilkomumikla Eldborgargíg hefst skammt frá tjaldsvæðinu.

Tjaldsvæðið er opið allt árið um kring og tekur á móti gestum á öllum árstímum. Við bjóðum upp á einfalda tjaldsvæðis upplifun með allri helstu aðstöðu fyrir gesti sem ferðast með eigin útilegu búnað. Tjaldsvæðið hentar vel sem áningarstaður fyrir þá sem vilja skoða Snæfellsnes yfir vetrarmánuðina.

Aðstaða

Gestir hafa aðgang að:

* Salernum, opin allan sólarhringinn
* Sturtum, 500 kr. fyrir 5 mínútur
* Sameiginlegu rými með Wi-Fi og setuaðstöðu
* Eldavélum
* Örbylgjuofni
* Vatnskönnum
* Brauðrist

Athugið að eldunaráhöld, eldhúsáhöld, diskar, glös, hnífapör og annar borðbúnaður eru ekki til staðar. Gestir þurfa því að koma með eigin búnað til matargerðar.

Sameiginlega rýmið og eldunaraðstaðan eru opin frá 08:00–22:00. Salerni eru opin allan sólarhringinn.

Vatn og losun
Áfylling á ferskvatni: Er aftan við rauða húsið. Yfir kaldari mánuðina getur áfyllingin verið lokuð vegna hættu á frostskemmdum á lögnum.
Svartvatn: Við erum ekki með aðstöðu fyrir losun úr klósettum

Eldborg Tjaldsvæði er ekki með móttöku. Bókanir fara fram í gegnum parka, þannig að gestir geta komið sér fyrir án þess að þurfa að fara í móttöku.

Ef einhverjar spurningar vakna eða gestir lenda í vandræðum meðan á dvölinni stendur er alltaf velkomið að hafa samband við okkur í síma eða tölvupósti. Við erum til staðar til að aðstoða.

Tjaldsvæðissvæði

Tjaldsvæðið er ekki með afmörkuð stæði. Við bókun velja gestir á milli tveggja svæða:

*Svæði A – Án rafmagns*
Fyrir gesti sem þurfa ekki rafmagnstengingu.

*Svæði B – Með rafmagni*
Á svæði B eru 3 rafmagnstengingar og því aðeins hægt að bóka 3 pláss.

Við komu geta gestir valið sér hvaða lausa tjald- eða bílastæði sem er á tjaldsvæðinu, óháð því hvaða svæði var bókað. Ef gestur hefur bókað á svæði B en vill frekar tjalda eða leggja á öðru svæði er það að sjálfsögðu í lagi og rafmagnstengingin stendur áfram til boða.

Bílnúmer
Ef þið vitið ekki bílnúmerið þegar bókun er gerð, getið þið einfaldlega skrifað „ADD LATER“ í reitinn fyrir bílnúmer.
Þið getið síðan skráð bílnúmerið í gegnum innritun í Parka þegar þið eruð á leiðinni eða komin á tjaldsvæðið.

Í mikilli rigningu og vætutíð:
Þegar jörð verður mjög blaut eða drullug biðjum við gesti að forðast að leggja á grasinu til að verja svæðið. Á slíkum tímum er gestum velkomið að leggja nær hvíta húsinu þar sem eru hentugri stæði. Þannig getum við boðið upp á þægilegan valkost í blautu veðri og um leið verndað tjaldsvæðið.
Upplýsingar tjaldsvæðis
Snorrastaðir , 311
8477878
sbjorganna@gmail.com
Verðskrá
Fullorðnir
2200 kr.
Ungmenni 12-18 ára
1100 kr.
Aldraðir/Öryrkjar
1200 kr.
Gistináttaskattur
400 kr.
Rafmagn
1200 kr.
Eiginleikar
Opið allt árið
Vetraropnun
Sumaropnun
Eldunaraðstaða
Áfylling vatns
Heitt vatn
Kalt vatn
Salerni
Kolagrill
Rafmagn
Sturta
Uppþvottaaðstaða
Þráðlaust net
Gönguleiðir
Gæludýr í taumi
Strætó stopp