I-Stay ehf (kt. 540114-1290) rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirra þjónustu sem keypt er hér. Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 48 tímum fyrir bókaða dagsetningu og fá greidda upphæð að frádregnum 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt. Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu. Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 13 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma. Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 12. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför. Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði er 6 einstaklingar 13 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar. Hverri bókun (stæði) fylgir ein gistieining (tjald, fellihýsi o.s.frv.) Séu gestir með fleiri gistieiningar er nauðsynlegt að bóka viðbótarstæði. Óheimilt er að framselja bókað stæði. Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK. Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tókst
Við munum senda þér upplýsingar um bókunina þína á Airport camping - Sandgerði.
Villa
Upp kom villa
Þessi vefsíða notast við vefkökur til þess að bæta notenda upplifun. SjáFriðhelgisstefna