Berunes Campsite
Skjólsælt og fallegt lítið tjaldsvæði fyrir bíla og tjöld, með einstöku útsýni yfir fjörð og fjöll. Stutt er í veislumat og austfirskt öl (opið júní - ágúst). Merkt gönguleið liggur upp á fjallatinda.
Hólf tjaldsvæðis
Lýsing tjaldsvæðis
Berunes er lítið fjölskyldurekið tjaldsvæði á sveitabæ við Berufjörð.
Svæðið er skjólsælt, umlukið fjöllum og víðáttumiklu austfirsku landslagi; góður staður til að hægja aðeins á, ganga og njóta umhverfisins.
Á tjaldsvæðinu er aðstaða fyrir tjöld, húsbíla og hjólhýsi, bæði með og án rafmagns. Þar eru salerni, heit sturta, lítið eldhús, uppþvottaaðstaða, drykkjarvatn, flokkun og aðstaða til að losa grátt og svart vatn. Einnig er þvottaaðstaða í boði.
Bókunin gildir fyrir valið hólf, en innan þess er frjálst stæðaval. Við komu velur þú einfaldlega lausan stað innan hólfsins þíns.
Við óskum eftir að farið sé eftir leiðbeiningum HMS um bil á milli gistieininga: að lágmarki 3 m á milli tjalda og 4 m á milli ferðavagna. Æskilegt er að ferðavagnar snúi dráttarbeisli út að akstursleið.
Athugið að aðeins takmarkaður fjöldi rafmagnstengla er á svæðinu. Ef ekki er hægt að velja rafmagn í bókunarferlinu eru allir tenglar uppteknir. Vinsamlegast tjaldið eða leggið ekki við rafmagnstengla nema þið eigið bókað rafmagn.
Á svæðinu eru þrír rafmagnsstaurar með fjórum tenglum hver.
Rafmagnstenglar á svæðinu eru hefðbundin blá CEE-tengi (3 pinna).
Merkt gönguleið liggur beint frá tjaldsvæðinu upp til fjalla og stutt er niður að fjörunni.
Morgunverður er í boði frá miðjum maí og að miðjum september og hægt er að fá kalda drykki á barnum.
Frá júní og út ágúst er Berunes Restaurant opinn á kvöldin og er heimsókn þangað upplifun út af fyrir sig segja þeir sem reynt hafa.
Verið þið velkomin á Berunes.

Fullorðinn (16-66)
2450 kr.
Heldriborgarar (67+)
2150 kr.
Hjólandi gestur - sérverð
2150 kr.
Rafmagn - Ein eining
1300 kr.
Gistináttaskattur
400 kr.
Veitingahús
Foss
Sumaropnun
Hleðsla fyrir rafbíla
Smáhýsi til útleigu
Eldunaraðstaða
Áfylling vatns
Flokkun sorps
Frítt fyrir börn
Heitt vatn
Hleðslustöð
Kalt vatn
Salerni
Kolagrill
Rafmagn
Sturta
Uppþvottaaðstaða
Þráðlaust net
Þurrkaðstaða
Þurrkari
Þvottavél
Seyrulosun
Gönguleiðir
Sparkvöllur
Hundar leyfðir
Gæludýr í taumi
Strætó stopp