Parka.is
Melanes, Rauðasandi Campground Photo
Melanes, Rauðasandi
Tjaldsvæðið Melanes hefur verið opnað.
Tjaldsvæðið Melanes við Rauðasand er tjaldsvæði á frábærum stað á Vestfjörðum.
Hólf tjaldsvæðis
Lýsing tjaldsvæðis
Á Melanesi er rekið eina tjaldsvæðið á Rauðasandi. Á fallegu grænu túni sem liggur við sandinn, með dásamlegt útsýni að Látrabjargi. Af tjaldsvæðinu er hægt að ganga í allar áttir og upplifa dýralíf og náttúru.

Salerni og sturtu aðstaða fyrir alla, þ.m.t. aðgengi fyrir hjólastóla. Eldunaraðstaða, þvottavélar, útigrill, bekkir, borð og leiksvæði.
Sellátur er á sandinum og þar liggja hundruðir landsela allt árið um kring. Westfjords Adventures á Patreksfirði bjóða uppá selaferðir á traktor með kerru og eru ferðirnar farnar frá tjaldsvæðinu alla daga, ef pantað er. Frá tjaldsvæðinu er létt 1 km ganga inn að Sjöundá sem er eyðibýli sem margir þekkja úr sögunni Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson. Frá Sjöundá er svo hægt að ganga lengra, m.a. er miðlungs erfið ganga inn að vitanum í Skor (en sú leið er þó ekki fyrir lofthrædda), og svo er erfið en falleg gönguleið um Sjöundárdal, Ölduskarð og niður í surtarbrandsnámurnar í Stálfjalli.
Upplýsingar tjaldsvæðis
KT: 6303161620
Melanes , 451
783-6600
melanes451@gmail.com
Opið: 15. Maí - 15. Sep
Verðskrá
Tjaldsvæði 17-66 ára
1800 kr.
Tjaldsvæði Örykjar og 67+
1200 kr.
Rafmagn á tjaldsvæði
1200 kr.
Eiginleikar
Eldunaraðstaða
Frítt fyrir börn
Heitt vatn
Kalt vatn
Salerni
Kolagrill
Rafmagn
Sturta
Þráðlaust net
Hjólastóla aðgengi
Gönguleiðir
Leiktæki
Hundar leyfðir
Gæludýr í taumi