Parka.is
Kópasker Campground Photo
Kópasker
Tjaldsvæðið Kópaskeri er staðsett við innkeyrsluna í bæinn. Þar er góð aðstaða og góðar gönguleiðir í nágrenni.
Hólf tjaldsvæðis
Myndir
Lýsing tjaldsvæðis
Tjaldsvæðið á Kópaskeri er við innkeyrsluna inn í þorpið. Þjónustuhúsið með tveim vöskum, sturtu og einu salerni blasir við en tjaldsvæðið sjálft er neðan við bakkann. Þar er mjög skjólgott úr öllum áttum nema sunnanátt.

Á tjaldsvæðinu er kolagrill, rafmagnstenglar og þvottasnúra ásamt pikknik borðum.

Á Kópaskeri er heilsugæsla, útibú Lyfju, útibú Landsbankans, Skerjakolla (verslun), vínbúð, hárskeri og Röndin vélaverkstæði.

Á Kópaskeri er Skjálftasetur, Byggðasafn sem er rétt utanvið þorpið, 9 holu púttvöllur, leiktæki og margt fleira. Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenninu og eru sýndar á korti við tjaldsvæðið. Í góðu veðri liggja selir á steinum við ströndina en einnig er fjölbreytt fuglalíf í þorpinu og allt í kring.

* Fáir rafmagnstenglar eru á svæðinu og ekki hægt að ábyrgjast aðgengi að rafmagni.
* Aðgengi fyrir hjólhýsi að grassvæði er erfitt en hægt er að leggja á malbikuðu plani við hlið
grassvæðis.
Upplýsingar tjaldsvæðis
KT: 6401695599
Ketilsbraut 7-9 , 640
sportkopasker@nordurthing.is
Opið: 24. Maí - 31. Ágú
Verðskrá
Fullorðnir (18 ára og eldri)
1600 kr.
Eiginleikar
Heitt vatn
Kalt vatn
Salerni
Leiktæki
Hundar leyfðir