This is an open campsite but it's NOT FREE. Pay at Röstin restaurant or through the internet with parka.is/gardskagi.
Leggja má á stóra túninu kringum Garðskagavita hinn nýja en bannað er að leggja bílum til gistingar á öllum bílastæðum.
• Garðskagi ehf kt 4508100100 rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirra þjónustu sem keypt er hér.
• Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 24 tímum fyrir bókaða dagsetningu.
• Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu.
• Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 15:00 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma.
• Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 12:00. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför.
• Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði er 6 einstaklingar 13 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar.
• Óheimilt er að framselja bókað stæði.
• Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK.
• Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.