- L&E ehf (kt. 530514-0560) rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirrar þjónustu sem keypt er hér.
- Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 24 tímum fyrir bókun og fá greidda upphæð að frádregnu ISK 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt.
- Ef dvöl er stytt fæst 50% endurgreiðsla fyrir þær nætur sem ekki eru nýttar.
- Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu.
- Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 15:00 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma.
- Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 12:00. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför.
- Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði eru 6 einstaklingar 13 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar.
- Óheimilt er að framselja bókað stæði.
-Með öllu er óheimilt að tengja rafmagns og tvin bíla við rafmagstengi á svæðinu. Verði gestir staðnir að því er við því 15.000kr greiðsla auk þess að gesti ber að greiða þann kostnað sem tilfellur við yfirferð og viðgerð á rafkerfi svæðisins af völdum tengingarinnar.
Einstaklinga yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd með
forráðamanni.
- Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK.
- Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands Vestra.